Flugumferðarstjórar funda

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Flugumferðarstjórar funda

Kaupa Í körfu

DYNJANDI lófaklapp við lok félagsfundar Félags íslenskra flugumferðarstjóra í gær endurspeglaði skýran vilja fundarmanna til að veita stjórn FÍF óskorað umboð til að undirrita samkomulag félagsins við Flugstoðir ohf. en upp úr viðræðum FÍF og Flugstoða slitnaði á þriðjudagskvöld eftir að náðst hafði niðurstaða um lífeyrisréttindi flugumferðarstjóra. Einnig ítrekuðu Flugstoðir að flugumferðarstjórum yrðu tryggð sömu kjör og réttindi og þeir höfðu meðan þeir voru starfsmenn Flugmálastjórnar Íslands. MYNDATEXTI: Fundað - Flugumferðarstjórar hittust í gærdag en í gærkvöldi undirritaði Félag íslenskra flugumferðarstjóra samkomulag við Flugstoðir ohf.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar