Sæþór EA

Þorgeir Baldursson

Sæþór EA

Kaupa Í körfu

Samtak ehf. í Hafnarfirði afhenti í desember G. Ben. ehf. útgerð á Árskógssandi Víking 1.500-fiskibát sem er 30 tonna plastbátur yfirbyggður að hluta. Báturinn sigldi heim í heimahöfn milli jóla og nýárs og gekk ferðin mjög vel. Báturinn hefur hlotið nafnið SÆÞÓR EA 101. Hann verður gerður út frá Árskógssandi og mun G. Ben. ehf. útgerðin, sem rekin er af feðgunum Hermanni Guðmundssyni og Arnþóri Hermannssyni, sem einnig er skipstjóri bátsins, nota bátinn á netaveiðum á Norðurlandsmiðum. MYNDATEXTI: Bátar - Nýi báturinn er 30 tonn og yfirbyggður að hluta til, 15 metra langur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar