Gavia - íslenskur kafbátur

Ragnar Axelsson

Gavia - íslenskur kafbátur

Kaupa Í körfu

TVEIR dvergkafbátar sem íslenska fyrirtækið Hafmynd hefur þróað voru nýlega seldir til tveggja vinveittra þjóða fyrir um 100 milljónir króna. Fram kom á blaðamannafundi í gær að ástralski flotinn hefur keypt einn kafbát af Hafmynd, en ekki er hægt að greina frá því að svo stöddu hvaða ríki hefur keypt hinn bátinn sem nýlega var seldur. Hafmynd vonast til þess að selja 5–8 slíka dvergkafbáta á þessu ári, en fyrirtækið hlaut nýlega alþjóðlega viðurkenningu fyrir byltingarkennda lausn í öryggismálum ríkja. MYNDATEXTI: Kafbátur - Torfi og Arnar við dvergkafbátinn Gavia, en báturinn er um 30 cm í þvermál og um 1,5 metrar að lengd.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar