Trabant

Trabant

Kaupa Í körfu

ÍSLENSKU böndin Apparat Organ Quartet, Trabant og Unsound auk plötusnúðanna Margeirs og Alfons X, öll undir merkjum Iceland Airwaves, munu taka þátt í Public Service tónlistarhátíðinni í miðborg Kaupmannahafnar í dag og á morgun. Public Service hátíðin, sem þykir með veglegri tónlistarhátíðum á Norðurlöndunum, er haldin á vegum útvarpstöðvarinnar P3 og danska ríkisútvarpsins í samvinnu við Kaupmannahafnarborg. MYNDATEXTI: Trabant-liðar munu ugglaust ekki valda vonbrigðum í Kaupmannahöfn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar