Sigrún Björk bæjarstjóri á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Sigrún Björk bæjarstjóri á Akureyri

Kaupa Í körfu

"MÉR ER efst í huga sú ábyrgð sem mér er falin og ég tek áskoruninni; ég er afar stolt, full tilhlökkunar og gleði og ég hlakka til að byrja að vinna," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, en hún var í gær ráðin bæjarstjóri á Akureyri, fyrst kvenna. Sigrún sagði það ennþá frétt að kona væri ráðin í starf sem þetta, þó að vonandi þætti það ekki mikil frétt í framtíðinni, en ráðning sín væri vissulega mikilvægt skref fyrir konur. Sigrún var kjörin bæjarstjóri með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar