Færeyskir listamenn með sýningu í Hafnarborg

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Færeyskir listamenn með sýningu í Hafnarborg

Kaupa Í körfu

SÝNINGIN Einsýna list verður opnuð í Hafnarborg í dag, en þar sýna sex færeyskir listamenn málverk sín, þau Edward Fuglø, Astri Luihn, Sigrun Gunnarsdóttir Niclasen, Torbjørn Olsen, Eyðun av Reyni og Ingálvur af Reyni. Sýningin er sett upp í samvinnu við Norðurlandahúsið í Færeyjum, Listasafnið í Þrándheimi og Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn. Í fréttatilkynningu segir að færeyskir listmálarar hafi lengi sótt innblástur í stórbrotið umhverfi og hafið sem umlykur eyjarnar. MYNDATEXTI: Færeyingar - Frá vinstri: Eyðun av Reyni, Sigrun Gunnarsdóttir Niclasen, Astri Luihn og Edward Fuglø.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar