Steypuvinna í húsgrunni í Hafnarfirði

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Steypuvinna í húsgrunni í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

KEPPST er við að byggja hús, stór og smá, hvarvetna á höfuðborgarsvæðinu og sums staðar hafa heilu íbúðar- og þjónustuhverfin risið á nokkrum mánuðum. Þessir félagar unnu við að steypa húsgrunn í Hafnarfirði í gær þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að. Heldur hefur dregið úr eftirspurn á fasteignamarkaði samhliða hækkun vaxta. Á sama tíma hefur framboð á húsnæði aukist og búist er við að það aukist enn frekar á næstu mánuðum þegar húsnæði sem nú er í byggingu verður fullklárað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar