Flugvél hlekktist á í flugtaki

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Flugvél hlekktist á í flugtaki

Kaupa Í körfu

"VIÐ vorum að undirbúa tæki til að hreinsa snjó af flugbrautum þegar ég sá vélina renna til og greinilegt var að hún var ekki á flugbrautinni," sagði Þórir Steinarsson, varðstjóri slökkviliðsins á Reykjavíkurflugvelli, sem varð vitni að því í gær þegar flugvél Flugstoða ohf. hlekktist á í flugtaki og þeyttist út fyrir braut. "Hún stefndi á flugplan þar sem voru fyrir tvær þotur, snjóruðningstæki og mannskapur. En svo sveigði hún frá og flugstjóranum tókst að stýra vélinni einhvern veginn aftur inn á brautina. Það var frábærlega vel gert."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar