Blómahús

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Blómahús

Kaupa Í körfu

ÞORRI karlpenings þessa lands á von á góðu í dag ýmist í formi blóma, konfekts, kossa eða annars konar dekurs. Ástæðan er sú að í dag er bóndadagur, fyrsti dagur þorra. Góa byrjar svo með konudegi, sunnudaginn 18. febrúar næstkomandi. Þangað til láta Íslendingar það eftir sér að borða yfir sig af þorramat því árstíð þorrablóta er nú hafin með tilheyrandi gleðskap. Í gömlu kvæði segir um þorrann: Þorri hristir fannafeldinn/ fnæsir í bæ og drepur eldinn. Um góu segir hins vegar: Góa á til grimmd og blíðu/gengur í éljapilsi síðu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar