Haraldur Stefánsson

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Haraldur Stefánsson

Kaupa Í körfu

Keflavíkurflugvöllur | "Það er alveg kominn tími á mig. Ég er orðinn elsti starfandi slökkviliðsstjórinn hjá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna," segir Haraldur Stefánsson sem í þessum mánuði lætur formlega af störfum sem slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli. Hann hefur starfað samfellt hjá liðinu í fimmtíu ár. Af þessu tilefni var efnt til mikillar veislu á Keflavíkurflugvelli þar sem yfirmenn varnarliðsins og samstarfsmenn Haraldar kvöddu hann með virktum og þökkuðu honum langa og dygga þjónustu. MYNDATEXTI: Hættur Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri og Erla Ingimarsdóttir, eiginkona hans, kveðja gamla vinnustaðinn á Keflavíkurflugvelli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar