Hallormsstaðarskógur

Steinunn Ásmundsdóttir

Hallormsstaðarskógur

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Undanfarin ár hafa Héraðs- og Austurlandsskógar í samstarfi við Tölvusmiðjuna á Egilsstöðum unnið að þróun og hönnun landfræðilegs gagnagrunns í skógrækt, fyrir hönd og í samstarfi við landshlutabundnu skógræktarverkefnin, fagstofnanir og félagasamtök í skógrækt á Íslandi. Að sögn Guðmundar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Héraðs- og Austurlandsskóga, verður með verkefninu, sem styrkt er af Alþingi og Rannís, til öflug og einstök upplýsingaveita þar sem í framtíðinni er stefnt á að allar skógræktarframkvæmdir á landsvísu verði skráðar og vistaðar. MYNDATEXTI: Þekkingarauki Grænsíða er rannsóknatæki fyrir skógræktarrannsóknir, þjónustar skógareigendur, skógræktarverkefni ýmis og almenning.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar