Deiliskipulag Hafnarfjarðar og álver

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Deiliskipulag Hafnarfjarðar og álver

Kaupa Í körfu

Þverpólitísk sátt náðist að sögn Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, innan starfshóps sem skipaður var til að fjalla um deiliskipulag vegna fyrirhugaðrar stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Í skipulaginu felst m.a. að þynningarsvæði álversins minnki um 2/3 og að mengun vegna stækkunarinnar verði sambærileg þeirri sem nú er. Íbúar Hafnarfjarðar kjósa um deiliskipulagið, og þar með stækkun álversins, 31. mars nk. svo fremi tillaga þess efnis verður samþykkt á bæjarstjórnarfundi nk. þriðjudag. MYNDATEXTI: Línurnar - lagðar Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, kynnti fjölmiðlum nýtt deiliskipulag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar