Flugmálastjórn Keflavík

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Flugmálastjórn Keflavík

Kaupa Í körfu

Keflavíkurflugvöllur | "Yfirfærslan hefur tekist vonum framar. Ég tel að það megi segja að hún sé skólabókardæmi um það hvernig svona hlutir eigi að gerast," segir Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli. Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar kynnti í gær starfsemi stofnunarinnar eftir þær breytingar sem orðið hafa við yfirtöku Íslendinga á þeim verkefnum sem varnarliðið annaðist við rekstur flugvallarins. MYNDATEXTI: Gömul tæki - Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar fékk snjóruðningstækin á leigu hjá Bandaríkjamönnum. Þau gera sitt gagn þótt gömul séu orðin. Endurnýjun er hafin og fyrsta nýja tækið kom fyrr í mánuðinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar