Myndavélabúnaður í lögreglubíl

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Myndavélabúnaður í lögreglubíl

Kaupa Í körfu

UMFERÐAREFTIRLIT lögreglu verður aukið og fleiri hraðamyndavélum komið fyrir við þjóðvegi landsins samkvæmt samstarfssamningi milli ríkislögreglustjóra, Umferðarstofu og Vegagerðarinnar sem undirritaður var í gær. Lögregla fær með samningnum 218 milljónir aukalega á næstu tveimur árum sem m.a. verða notaðar til að fjölga starfandi lögreglumönnum og til að kaupa upptökubúnað í 32 lögreglubíla og -mótorhjól sem gerir lögreglumönnum kleift að vera einir að störfum við umferðareftirlit. MYNDATEXTI: Rafrænt vitni - Ratsjárbúnaði með myndavél verður komið fyrir í 32 farartækjum lögreglu. Unnar Már Ástþórsson varðstjóri aðgætir búnaðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar