Innlit í Hafnarfirði

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Innlit í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

Í fallegu húsi í grónu hverfi í norðurbæ Hafnarfjarðar býr fimm manna fjölskylda sem nýlega flutti út í hálft ár á meðan að húsið var stækkað og því breytt að þeirra þörfum. Katrín Brynja Hermannsdóttir brá sér í heimsókn. Hjónin voru nokkuð viss í sinni sök þegar þau leituðu að húsnæði í Hafnarfirðinum. Eiginmaðurinn reyndar ekki uppalinn þar en húsfreyjan fæddur og uppalinn Gaflari. Eftir nokkur ár í Breiðholtinu fannst henni hún því vera komin aftur heim er þau festu kaup á fallegu húsi í norðurbæ Hafnarfjarðar. Gróið hverfið er líka bæði barnvænt og rólegt sem kemur sér vel fyrir fimm manna fjölskyldu þar sem yngsti meðlimurinn er ekki nema fimm mánaða MYNDATEXTI Glæsilegt Arininn er óvenjulegur og sérlega flottur en Rut fékk alveg frjálsar hendur með hönnun hans. Skenkurinn hægra meginn er úr versluninni Heima

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar