Bruni í báti við Arnarstapa

Alfons Finnsson

Bruni í báti við Arnarstapa

Kaupa Í körfu

SKIPVERJAR á Særifi SH brugðust skjótt við í gærkvöldi í höfninni við Arnarstapa þegar eldur varð laus í Reyni Þór SH, 15 tonna báti sem lá þar bundinn. Skipverjum á Særifi varð ljóst hvað hafði gerst þegar þeir voru að ljúka löndun og hugðust leggja upp að síðunni á Reyni Þór. Þá mætti þeim svartur reykur frá vélarrúmi í mannlausum bátnum og fóru þeir um borð og hófu slökkvistörf. Að sögn Arnars Laxdals á Særifi byrjuðu þeir á því að loka öllum loftinntökum og varna því að eldurinn næði sér almennilega á strik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar