Grímseyjarferja

Ragnar Axelsson

Grímseyjarferja

Kaupa Í körfu

VERKLOK við endurbætur Grímseyjarferjunnar eru nú áætluð 25. maí næstkomandi, að sögn Kristínar H. Sigurbjörnsdóttur, framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs Vegagerðarinnar. Upphaflega átti að taka ferjuna í notkun í byrjun nóvember 2006. Kristín sagði að áætlaður heildarkostnaður við ferjuna væri nú um 350 milljónir króna. Það er nokkru meira en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Kaupverð skipsins var 102 milljónir og upphaflegt samningsverð vegna endurbóta um 117 milljónir. MYNDATEXTI: Endurbætur - Stálsmíði er að mestu lokið og vinna að hefjast við málningu og innréttingar nýju Grímseyjarferjunnar. Skipið verður eins og nýtt að sögn framkvæmdastjóra Vélsmiðju Orms og Víglundar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar