Íþróttahús í Kópavogi

Íþróttahús í Kópavogi

Kaupa Í körfu

RÍFANDI gangur er í byggingu fjölnota íþróttahúss við Vallakór í Kópavogi. Framkvæmdir hófust í fyrrasumar og er gert ráð fyrir að húsið verði tilbúið í sumar. Í húsinu verður viðurkenndur, alþjóðlegur knattspyrnuvöllur í fullri stærð. Aðstaða verður fyrir um 2.000 áhorfendur og verður hægt að stækka stúkuna svo hún rúmi um 3.000 manns. Knattspyrnuakademían byggir síðan við íþróttahús ásamt búningsaðstöðu. Auk þess verður þarna sundlaug og fleira, en Kópavogsbær samdi við Ístak um framkvæmdirnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar