Reykjavíkurtjörn

Sverrir Vilhelmsson

Reykjavíkurtjörn

Kaupa Í körfu

ÞRÁTT fyrir að ekki hafi verið mikið frost í höfuðborginni í gærdag var Reykjavíkurtjörn ísilögð. Eitthvað virtist þessum hressu ungmennum ganga illa að fóta sig við þessar aðstæður en þau létu það ekki á sig fá þótt þau dyttu, heldur gerðu sér leik úr aðstæðunum. Í dag gerir Veðurstofa Íslands ráð fyrir hægri austlægri átt, en 8-13 metrum á sekúndu syðst á landinu. Skýjað og stöku él verður suðaustan til en annars yfirleitt léttskýjað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar