Blaðamannafundur - Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Blaðamannafundur - Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra

Kaupa Í körfu

JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra mælir í dag á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Með frumvarpinu vilja stjórnvöld skapa heildstæða verndar- og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu og vatnsafl á Íslandi. Iðnaðarráðherra og Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra kynntu frumvarpið fyrir blaðamönnum í gær og sögðu við það tækifæri að með því væri leitast við að leggja grunn að sátt milli sjónarmiða verndar og nýtingar og að frumvarpið markaði því þáttaskil í umdeildum málum, sem vörðuðu alla þjóðina. MYNDATEXTI: Auðlindir - Iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra kynntu á fundi í gær verndar- og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu og vatnsafl á Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar