Loðnuflokkun - Brimberg Seyðisfirði

Þorgeir Baldursson

Loðnuflokkun - Brimberg Seyðisfirði

Kaupa Í körfu

LOÐNUVEIÐAR hafa gengið erfiðlega síðustu daga. Bræla og áta í loðnunni hefur hamlað veiðunum og frystingu til manneldis. Í gær var þó komið veiðiveður eftir tæplega tveggja sólarhringa stopp og voru skipin byrjuð að kasta við Ingólfshöfðann. Lárus Grímsson, skipstjóri á Sunnuberginu, var að fara að kasta þegar verið náði í hann í símann. "Þetta er búið að vera hundleiðinlegt, stöðug bræla, en það er töluvert að sjá. Nú getum við kastað og vonandi verður veiðiveður áfram en það er spáð austanátt alla vikuna, held ég," sagði Lárus.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar