Dagblöð á stafrænt form

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Dagblöð á stafrænt form

Kaupa Í körfu

ÞRÍR starfsmenn verða brátt ráðnir til þess að mynda dagblöðin Tímann, Þjóðviljann og Alþýðublaðið frá upphafi til enda, og Dag að auki, en blaðið, sem gefið var út á Akureyri, var lengst af vikublað en dagblað síðustu árin sem það kom út. Ný vinnslulína verður sett í Amtsbókasafninu vegna þessa, safnið útvegar myndefnið og húsnæði en Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn greiðir launin. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður undirrituðu í gær samstarfssamning vegna verkefnisins og er stefnt að því að öll nefnd blöð verði aðgengileg á stafrænu formi á Netinu innan þriggja ára.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar