Valur - ÍBV 38:21

Sverrir Vilhelmsson

Valur - ÍBV 38:21

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var boðið upp leik kattarins gegn músinni á fjölum Laugardalshallar í gær þegar Valur rótburstaði Íslandsmeistara ÍBV, 38:21. Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir Vals algjörir. Valur yfirspilaði gesti sína og sallaði mörkunum í Eyjamarkið úr hraðaupphlaupunum sem urðu mörg hver til eftir klaufaleg mistök í sókn ÍBV-liðsins. MYNDATEXTI: Skrefi á undan - Dæmigerð mynd úr leik Vals og ÍBV í Laugardalshöllinni í gær. Valskonan Hildigunnur Einarsdóttir brunar fram í hraðaupphlaupi en Sæunn Magnúsdóttir úr ÍBV kemur engum vörnum við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar