Öskudagur

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Öskudagur

Kaupa Í körfu

Dreymir þig um að vera sjónvarp? Eða öskuhaugur? Hvort tveggja er mögulegt. Ef fögur prinsessa eða sjóræningi heillar fremur er ekkert því til fyrirstöðu heldur. Og allt þetta þarf ekki að kosta nema brot af því sem hefðbundnir öskudagsbúningar kosta úti í búð. Með pínulítilli útsjónarsemi, dágóðum skammti af ímyndunarafli, góðum skærum og nál og spotta má breyta gamalli flík í glæsilegan búning sem er þar að auki einstakur í sinni röð. Venjulegir þekjulitir eða málningarlímband í mismunandi litum geta líka komið sér vel og ef einhver lumar á gömlum efnisbútum, gluggatjöldum, blúndum eða slaufum eru hugmyndaríkum búningahönnuðum allir vegir færir. Liggi slíkar gersemar ekki á lausu á heimili þeirra sjálfra er aldrei að vita nema þær leynist í kistlum og skápum heima hjá ömmu eða töntu. MYNDATEXTI Sjóræningi Þessi ungi maður ákvað sjálfur að búa til sinn eigin búning og með góðfúslegu leyfi foreldra sinna klippti hann ermarnar af gamalli spariskyrtu sem var orðin of stutt. Sú var raunin líka með sparibuxurnar og því var upplagt að stytta þær enn frekar svo úr yrði brók sem væri hentug fyrir sjóræningja. Gömul slæða af mömmu er prýðileg á hausinn og leikfangahnífinn átti ungi maðurinn í dótinu sínu en fæst ella úti í búð. Blöðrurnar gegna svo hlutverki fallbyssukúlna

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar