Öskudagur

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Öskudagur

Kaupa Í körfu

Dreymir þig um að vera sjónvarp? Eða öskuhaugur? Hvort tveggja er mögulegt. Ef fögur prinsessa eða sjóræningi heillar fremur er ekkert því til fyrirstöðu heldur. Og allt þetta þarf ekki að kosta nema brot af því sem hefðbundnir öskudagsbúningar kosta úti í búð. Með pínulítilli útsjónarsemi, dágóðum skammti af ímyndunarafli, góðum skærum og nál og spotta má breyta gamalli flík í glæsilegan búning sem er þar að auki einstakur í sinni röð. Venjulegir þekjulitir eða málningarlímband í mismunandi litum geta líka komið sér vel og ef einhver lumar á gömlum efnisbútum, gluggatjöldum, blúndum eða slaufum eru hugmyndaríkum búningahönnuðum allir vegir færir. Liggi slíkar gersemar ekki á lausu á heimili þeirra sjálfra er aldrei að vita nema þær leynist í kistlum og skápum heima hjá ömmu eða töntu. MYNDATEXTI Norn Neðri hlutinn er gamalt hnépils af mömmu sem teygja er þrædd í mittið á. Blússan og skikkjan er saumuð úr bómullarefni sem er 140 cm á breidd og fæst í Rúmfatalagernum á 299 kr. metrinn. Einn metri dugar í búninginn. Hattur er vafinn úr svörtum pappa en utan á hann er lagt svart blúnduefni með silfurblettum sem einnig fæst í Rúmfatalagernum á 299 kr. metrinn. Hálfur metri er nóg í bæði hatt og belti. Sprotinn er kínverskur matarprjónn. Kostnaður er innan við 500 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar