ABC barnastarf hefur söfnun

Sverrir Vilhelmsson

ABC barnastarf hefur söfnun

Kaupa Í körfu

NÆSTU þrjár vikurnar mega landsmenn búast við heimsóknum grunnskólabarna með söfnunarbauka ABC-barnahjálpar. Söfnunin hófst formlega í gær þegar vænn hópur úr 5. bekk C í Melaskóla bankaði upp á hjá borgarstjóra á miðjum borgarráðsfundi í Ráðhúsinu og varð hann fyrstur landsmanna til að setja þúsundkall í einn bauk og bætti síðan við fimm hundruð krónum í annan bauk. Því næst fengu krakkarnir að fara inn í fundarsalinn og var þeim vel tekið af borgarráðsfulltrúum sem gáfu í söfnunina. MYNDATEXTI Stuðningur Krakkarnir í 5. bekk C í Melaskóla voru ánægðir með viðtökur borgarstjórans í upphafi söfnunar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar