Eldur í sumarbústað við Hafravatnsveg

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Eldur í sumarbústað við Hafravatnsveg

Kaupa Í körfu

GAMALL sumarbústaður við Úlfarsfellsveg á Hafravatnsheiði brann til kaldra kola í gær en slökkviliði tókst að verja gróður í nágrenninu. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins tilkynnti vegfarandi um mikinn reyk og sendi slökkviliðið þegar fjóra bíla á vettvang en á sama tíma var mikill erill í sjúkraflutningum. Aukavatnsmagn var sent með stórum dælubíl frá Reykjavíkurflugvelli en alls fóru þrír dælubílar og einn tankbíll á staðinn. Þegar að var komið var bústaðurinn alelda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar