Eyþór Ingi Jónsson

Sverrir Vilhelmsson

Eyþór Ingi Jónsson

Kaupa Í körfu

Nýtt orgel verður vígt í Laugarneskirkju í dag kl. 17, en það er Eyþór Ingi Jónsson organisti sem mun halda fyrstu tónleikana á hið fullkláraða orgel. Orgelið er íslenskt, en það er stærsta smíði Björgvins Tómassonar orgelsmiðs og óvenju hljómmikið. Að sögn Gunnars Gunnarssonar, organista og tónlistarstjóra Laugarneskirkju, hentar einstakur hljómburður kirkjunnar líka afar vel fyrir orgeltónlist. Ljósmyndari gómaði Eyþór þegar hann tók örlítið forskot á sæluna og æfði sig á orgelið fyrir tónleikana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar