Fylkir - Fram 29:38

Brynjar Gauti

Fylkir - Fram 29:38

Kaupa Í körfu

MÖRG góð nöfn á leikskýrslu og góður sigur í síðasta leik dugði Fylki skammt þegar Fram kom í heimsókn í Árbæinn í gærkvöldi. Á löngum köflum örlaði varla á baráttu hjá Fylkismönnum. Þrisvar tókst þeim þó næstum því að vinna upp forskot Fram en sóttu þá í sama farið svo að gestunum úr Safamýrinni var í lófa lagið að vinna örugglega 38:29. Sigurinn færir Fram upp um tvö sæti, í það fjórða, en Fylkir er eftir sem áður í því sjöunda

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar