SHS- norska aðferðin

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

SHS- norska aðferðin

Kaupa Í körfu

MEÐ norskri aðferð sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er að æfa er hugsanlegt að stytta tímann sem það tekur að ná fólki út úr illa klesstum bílflökum um allt að helming. Aðferðin felst í því að bílflakið er togað í sundur og klippum beitt um leið. Árni Ómar Árnason aðstoðarvarðstjóri segir að aðferðin felist í því að afturhluti bílflaksins er festur við stóran bíl, vegrið eða annað traust og að framan er það fest við spil á slökkviliðsbíl. Síðan er togað í flakið og hefðbundnum klippum beitt eftir þörfum. MYNDATEXTI: Togað - Afturhluti flaksins er tryggilega festur og síðan togað í framhlutann með spili. Klippum er einnig beitt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar