Mývetningar leggja netin

Birkir Fanndal Haraldsson

Mývetningar leggja netin

Kaupa Í körfu

Mývatnssveit | Þau viðhalda gamalli hefð og vaka undir ísinn nokkrum netum systkinin á Grímsstöðum, Elín og Jóhannes. Fyrir fótum þeirra liggur kafarinn sem léttir þeim að koma netum á milli vaka. Jóhannes hefur smíðað slíka kafara í tugatali. Fleiri sveitungar eru á ísnum nú þessa dagana að koma sér fyrir á hefðbundinni lagnaslóð sinna heimila. Þeim er tilhlökkunarefni að eiga von á nýjum Mývatnssilungi í pottinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar