Gallerí Anima - Aðalheiður Eysteinsdóttir

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Gallerí Anima - Aðalheiður Eysteinsdóttir

Kaupa Í körfu

LITRÍKIR tréskúlptúrar Aðalheiðar af fólki og öðrum furðum eru auðþekkjanlegir í íslenskri myndlistarflóru. Fígúrurnar eru sagaðar til, smíðaðar og málaðar ekki með ósvipuðum aðferðum og notuð eru við sólpalla eða skjólveggjagerð. Þau virðast einnig gerð úr afgangsefniviði sem fellur til við slíka smíði ásamt eldra fundnu efni. Athyglisverð er oft nýting á mismunandi eiginleikum eða formgerð byggingarefnis eins og þegar strikaður panell er nýttur í röndóttar buxur eða veðurbarinn gránaður viður sagaður út í lopapeysumunstur. MYNDATEXTI: Lágmynd - "Verkin hafa yfirbragð leiks og föndurs þar sem allt er leyfilegt," segir m.a. í gagnrýni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar