Gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar

Kaupa Í körfu

SÉRHANNAÐUR rykbindibíll frá Reykjavíkurborg hefur verið tekinn í notkun til að hefta hið hættulega svifryk sem lengi sett hefur svip sinn á borgina, öllum til mikils ama. Rykbindibíllinn var sendur af stað nú í vikunni og dældi átta þúsund lítrum af sérstakri magnesíumklóríðblöndu á götur og er ekki vanþörf á þegar mengunin rýkur upp í margföld heilsuverndarmörk eins og raunin var á fimmtudag. Klukkan eitt eftir miðnætti mældist rykmengun nær 2.200 míkrógrömm á rúmmetra á færanlegri mælistöð. Heilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra MYNDATEXTI Næg verkefni eru handa öllum hreinsitækjum borgarinnar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar