Öskjuhlíðarskóli

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Öskjuhlíðarskóli

Kaupa Í körfu

ALMENNT ríkir mikil gleði í Öskjuhlíðarskóla í Reykjavík en ánægjan var óvenjumikil í gær, þegar Pétur Gunnarsson afhenti skólanum formlega, fyrir hönd nokkurra fyrirtækja, 19 tölvur af fullkomnustu gerð og tvo nýja prentara að gjöf. "Þetta er frábært framtak foreldris barns í skólanum og nú brosa allir allan hringinn í Öskjuhlíðarskóla," segir Dagný Annasdóttir skólastjóri. MYNDATEXTI: Tölvugjöf - Frá vinstri: Pétur Gunnarsson, Júlíus Pálsson, Ólafur Snævar Aðalsteinsson með blómvönd sem nemendur færðu Pétri, Dagný Annasdóttir skólastjóri og Ásdís Ásgeirsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar