Skarphéðinn Halldórsson

Brynjar Gauti

Skarphéðinn Halldórsson

Kaupa Í körfu

VERKEFNIÐ gengur út á að skilgreina náttúrulegar varnir lungnaþekjunar. Til þess að verjast sýkingum þarf líkaminn að setja upp ákveðnar varnir á allri líkamsþekjuni, á húðinni að utan, innan á meltingarveginum og inni í lungunum því þar koma stöðugt inn sýklar og aðskotahlutir sem lungnaþekjan þarf að geta varist," segir Skarphéðinn Halldórsson en verkefni hans nefnist "Náttúrulegar varnir lungnaþekju". "Hvernig þessum vörnum er háttað er ekki nákvæmlega vitað en það eru ýmis atriði sem hafa áhrif. Rannsóknin mun m.a. fela í sér að skilgreina þessa þætti betur og kanna áhrif ýmissa lyfja á seytingu vissra próteina og styrkingu þéttitengja á milli lungnafruma." MYNDATEXTI Skarphéðinn Halldórsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar