Gallabuxnatíska

Gallabuxnatíska

Kaupa Í körfu

Jacob Davis hefði áreiðanlega hlegið dátt árið 1870 hefði einhver sagt honum að vinnubuxurnar sem hann hannaði fyrir sérstaklega kröfuharðan viðskiptavin ættu eftir að slá í gegn í tískuheiminum nokkrum áratugum síðar. Þó urðu þær fljótt svo vinsælar að Davis leitaði eftir samstarfi við þann sem útvegaði gallaefnið, Levi Strauss. 137 árum síðar sér ekki enn fyrir endann á vinsældum gallabuxnanna eða gallaefnisins. Það er varla til það mannsbarn í Vesturheimi sem ekki á gallabuxur. Þær gegna lykilhlutverki í klæðaburði fjölda karla jafnt sem kvenna, hversdags sem við hátíðlegri tækifæri. MYNDATEXTI Snjáðar Gallabuxur, 3.690 kr. og belti, 2.490 kr. Next.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar