Gallabuxnatíska

Gallabuxnatíska

Kaupa Í körfu

Jacob Davis hefði áreiðanlega hlegið dátt árið 1870 hefði einhver sagt honum að vinnubuxurnar sem hann hannaði fyrir sérstaklega kröfuharðan viðskiptavin ættu eftir að slá í gegn í tískuheiminum nokkrum áratugum síðar. Þó urðu þær fljótt svo vinsælar að Davis leitaði eftir samstarfi við þann sem útvegaði gallaefnið, Levi Strauss. 137 árum síðar sér ekki enn fyrir endann á vinsældum gallabuxnanna eða gallaefnisins. Það er varla til það mannsbarn í Vesturheimi sem ekki á gallabuxur. Þær gegna lykilhlutverki í klæðaburði fjölda karla jafnt sem kvenna, hversdags sem við hátíðlegri tækifæri. MYNDATEXTI Leðurbelti Ljóst, 3.990 kr. Friis&Company. Brúnt, 6.500 kr. Valmiki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar