Gallabuxnatíska

Gallabuxnatíska

Kaupa Í körfu

Jacob Davis hefði áreiðanlega hlegið dátt árið 1870 hefði einhver sagt honum að vinnubuxurnar sem hann hannaði fyrir sérstaklega kröfuharðan viðskiptavin ættu eftir að slá í gegn í tískuheiminum nokkrum áratugum síðar. Þó urðu þær fljótt svo vinsælar að Davis leitaði eftir samstarfi við þann sem útvegaði gallaefnið, Levi Strauss. 137 árum síðar sér ekki enn fyrir endann á vinsældum gallabuxnanna eða gallaefnisins. Það er varla til það mannsbarn í Vesturheimi sem ekki á gallabuxur. Þær gegna lykilhlutverki í klæðaburði fjölda karla jafnt sem kvenna, hversdags sem við hátíðlegri tækifæri. MYNDATEXTI Hátíska Smekkbuxur þóttu upphaflega hentugar sem vinnubuxur en eru nú í hátísku, 14.990 kr. Levi's.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar