Öryggisheimsóknir eldri borgara

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Öryggisheimsóknir eldri borgara

Kaupa Í körfu

SAMSTARFSSAMNINGUR um öryggisheimsóknir til eldri borgara í Kópavogsbæ var undirritaður í gær af Kristni Ólafssyni, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra Kópavogsbæjar. Slysavarnafélagið mun kynna verkefnið fyrir öllum Kópavogsbúum 75 ára og eldri, samtals 1.600 einstaklingum. Auk þess mun félagið bjóða þeim sem þess óska heimsókn frá starfsmanni félagsins, þar sem farið verður yfir öryggisatriði heimilisins með tilliti til slysahættu, samkvæmt gátlista Slysavarnafélagsins. MYNDATEXTI: Öryggisheimsókn - Jón Svavarsson frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu er hér í heimsókn hjá Kópavogsbúanum Ólafi Friðrikssyni og fræðir hann um öryggisatriði heimilisins með tilliti til slysahættu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar