Púðar setja svip

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Púðar setja svip

Kaupa Í körfu

Í NAUMHYGGJU nútímans getur verið gott að grípa til ýmiskonar smáhluta til að lífga upp á heimilið. Púðar eru meðal slíkra muna því þeir gera ekki einungis gagn sem stuðningur við þreytt bök sófagesta heldur geta þeir breytt útliti eldri stóla og sófa þannig að þeir verða sem nýir. Í verslunum bæjarins fást nú litríkir púðar í öllum stærðum og gerðum. Skrautleg mynstur og sterkir litir eru þó engin nauðsyn vilji menn breyta til því einlitir púðar geta allt eins sett svip á gamla sófann og þannig sett punktinn yfir i-ið á útlit stofunnar. MYNDATEXTISímynstraður Þeir litaglöðu geta hresst upp á sófann með þessum púðum frá Habitat. Einlitur 3.900 kr. og mynstraður 4.500 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar