Sigmar Guðmundsson

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Sigmar Guðmundsson

Kaupa Í körfu

Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann á Akureyri í viðureign skólanna í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, sem fram fór í beinni útsendingu Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lið Verzló hlaut 27 stig en lið MA 25 stig. Sömu keppendur voru í liði Verzló og síðast, Árni Már Þrastarson, Ásgeir Erlendsson og Hafsteinn Gunnar Hauksson en í liði MA voru allir keppendur hins vegar að keppa í fyrsta sinn, þau Arna Hjörleifsdóttir, Konráð Guðjónsson og Svala Lind Birnudóttir. Spyrill var að vanda Sigmar Guðmundsson, spurningahöfundur og dómari Davíð Þór Jónsson og stigavörður Steinunn Vala Sigfúsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar