Fjölnir - Tindastóll 94:87

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Fjölnir - Tindastóll 94:87

Kaupa Í körfu

FJÖLNISMENN fögnuðu í tvígang í íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum í gærkvöldi, fyrst eftir að hafa lagt Tindastól að velli, 94:87, í síðustu umferð Iceland Express-deildar karla í körfu og síðan þegar þær fréttir bárust úr Þorlákshöfn að Njarðvík hefði lagt Þór. Þar með var ljóst að Fjölnir bjargaði sér frá falli úr efstu deild á síðustu stundu og því full ástæða til að fagna - tvisvar meira að segja. MYNDATEXTI: Áfram uppi - Hörður Axel Vilhjálmsson, einn af ungu og efnilegu piltunum hjá Fjölni, sækir að körfu Tindastóls.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar