Barnaspítali Hringsins

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Barnaspítali Hringsins

Kaupa Í körfu

ÞAÐ fer ekkert á milli mála að þær dýrðlegu gjafir sem þessi vinnustaður fær er lífsbjörg margra," segir Þórður Eric Hilmarsson og vísar þar til veglegra gjafa Kvenfélagsins Hringsins til Barnaspítala Hringsins. Síðasta mánudag fæddist Þórði og konu hans, Tatyönu Skokova, sonurinn Eric Alexander. Að sögn Þórðar var fæðingin erfið og þurfti Eric því að dvelja í nokkra daga á vökudeild. "Fólkið, sem þar vinnur, er í einu orði sagt frábært. Það vinnur við mjög góðar aðstæður sem hafa verið skapaðar af Hringskonum, sem leggja mikið á sig til að safna fyrir þessum tækjum. Ég er þessum konum afskaplega þakklátur því að gjafir þeirra eru liður í velgengni Erics." | 6

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar