Alþingi umræða um vatnalög

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Alþingi umræða um vatnalög

Kaupa Í körfu

BIRKIR J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks og formaður iðnaðarnefndar Alþingis, las upp bréf frá formanni Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), Birni B. Jónssyni, á þingfundi í gær, þar sem segir að UMFÍ hafi ekki staðið að umsögn um vatnafrumvarp iðnaðarráðherra sem send var nefndarsviði þingsins af hálfu BSRB. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og formaður BSRB, sagði þetta koma sér á óvart. MYNDATEXTI: Ísólfur Gylfi Pálmason og Ögmundur Jónasson í þingsal í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar