Fylkir - Valur 29:35

Fylkir - Valur 29:35

Kaupa Í körfu

VALSMENN gerðu góða ferð í Árbæinn í gær er þeir sigruðu Fylki 35:29 í DHL-deild karla í handknattleik. Valur heldur því toppsætinu og er stigi á undan HK sem sigraði Stjörnuna í Garðabæ, 26:25. Arnar Jón Agnarsson fór mikinn hjá Fylki og skoraði tólf mörk. Fimm umferðir eru eftir af deildinni og mætast HK og Valur í þar næstu umferð sem gæti orðið hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn sem er í vörslu Framara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar