Alþjóðlegur skólatöskudagur

Skapti Hallgrímsson

Alþjóðlegur skólatöskudagur

Kaupa Í körfu

IÐJUÞJÁLFAR fara í íslenska grunnskóla í þessari viku og vigta þorra nemenda, með og án skólatöskunnar. Tilefnið er alþjóðlegir skólatöskudagar en iðjuþjálfar víða um heim vilja vekja nemendur, foreldra og samfélagið í heild til umhugsunar um áhrif rangrar notkunar töskunnar á líkamlega heilsu barna og ungmenna. Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi í Glerárskóla á Akureyri, var á ferðinni þar í gær ásamt fleira starfsfólki þegar Morgunblaðið kom í heimsókn. Þar á bæ eru krakkar í flestum bekkjum vigtaðir og a.m.k. einhver bekkur í hverjum árgangi. MYNDATEXTI:Hvað ertu þungur? Þorri íslenskra grunnskólabarna stígur væntanlega á vigtina hjá iðjuþjálfum skólanna í þessari viku, með og án skólatöskunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar