Félag íslenskra atvinnuflugmanna með fund

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Félag íslenskra atvinnuflugmanna með fund

Kaupa Í körfu

AÐEINS er spurning um hvenær, ekki hvort, samgönguráðuneytið tekur við rekstri Keflavíkurflugvallar, segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Hann sagði á fundi með flugmönnum í gær að hann ætlaði að beita sér fyrir því að norðaustur–suðvestur-flugbrautin á Keflavíkurflugvelli yrði opnuð á nýjan leik. Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) boðaði til opins fundar til að ræða málefni Keflavíkurflugvallar á Hótel Nordica í gær. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, varaformaður FÍA, sagði tilganginn með fundinum þann að ræða öryggismál Keflavíkurflugvallar áður en búið er að taka ákvarðanir um framtíð vallarins í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar