Háskólinn á Akureyri

Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

Háskólinn á Akureyri

Kaupa Í körfu

MEISTARANÁM í heimskautarétti hefst á næsta ári við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri undir stjórn dr. Guðmundar Alfreðssonar prófessors. Þetta var tilkynnt í gær, auk þess sem tilkynnt var um fjárhagslegan stuðning utanríkisráðuneytisins við þetta verkefni – 18 milljónir króna á næstu þremur árum – og að auki undirrituðu ráðherra og rektor skólans samning þess efnis að útibú frá Þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins yrði í húsnæði skólans. MYNDATEXTI Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri handsala samningana

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar