Kaka með vínberjum

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Kaka með vínberjum

Kaupa Í körfu

Yngsti fjölskyldumeðlimurinn, Finnur Jónsson, er fjölfróður gutti þótt hann sé bara sex ára og veit upp á sína tíu fingur hvers konar kraftar geta búið í matnum. "Mamma og pabbi elda eiginlega bara hollan mat. Ég fæ stundum að hjálpa mömmu og pabba að elda. Þegar ég verð orðinn stór ætla ég ekki bara að elda hollan mat. Kannski, þegar ég verð átta ára eða níu fæ ég að baka svona bökur. Þær eru alltaf óhollar en við gerum þær bara stundum, þegar það eru svona veislur og þannig." Finnur hefur eins og fjölskyldan öll fallið fyrir töfrum Ítalíu þangað sem hún hefur nokkrum sinnum farið í sumarfrí. "Það er 13 stiga hiti þar," segir Finnur dreyminn um leið og hann eys ætiþistlafyllingunni á einn pastaferninginn. "Þetta er hollt," tilkynnir fræðingurinn. MYNDATEXTI Freistandi Finnur gat varla beðið eftir að bragða á vínberjakökunni. "Hún er svolítið óholl en vínberin holl." Pabbi hans, Jón Lárus Stefánsson, segist einmitt hafa lesið um karamellupastaréttinn í tímaritsgrein í flugvélinni þar sem verið var að fjalla um rétti héraðsins sem þau voru að fara til, Emilia-Romagna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar