Á Grænalandi

Theodór Þórðarson

Á Grænalandi

Kaupa Í körfu

Fjölbreytni mannlífsins kemur vel fram á ljósmyndum fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni sem birtast daglega í blaðinu. Þær eru eins konar spegill þjóðarinnar. Lokið er samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 2005 og 2006 sem Morgunblaðið og Okkar menn, félag fréttaritaranna, efndu til í byrjun þessa árs. Mörg hundruð myndir bárust dómnefnd. Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent á aðalfundi Okkar manna sem haldinn var í Morgunblaðshúsinu í Reykjavík í gær. Dómnefnd valdi "Skýjahöll", mynd Jónasar Erlendssonar, fréttaritara Morgunblaðsins í Mýrdal, sem mynd keppninnar. Einnig voru veitt verðlaun í átta keppnisflokkum. Verðlaunamyndirnar og valdar myndir úr keppninni hafa verið settar upp á sýningu í verslunarmiðstöðinni Smáralind, neðri hæð. Myndirnar verða þar til 4. apríl næstkomandi og verða síðan settar upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Atvinnulíf: Viðurkenning SELSKINNSRÓS Grænlenskir selveiðimenn nota sjóinn oft sem kalda geymslu fyrir afla sinn. Þegar Theodór Kr. Þórðarson heimsótti Kulusuk sumarið 2005 rakst hann á þessi hálfverkuðu selskinn sem bíða frekari meðhöndlunar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar